Vinavirkjun

Vinavirkjun á Hesteyri

Ha? Er rafmagn á Hesteyri?

Já, en eiginlega bara í Læknishúsinu. Forsagan er sú að Hrólfur Vagnsson, aðstoðarvertinn í Læknishúsinu var orðinn frekar þreyttur á sólarsellunum, sem skiluðu ekki nægilegri orku í ísskápana og símatækin. Hann pantaði litla túrbínu frá Ítalíu og 12 volta rafala frá Ameríku og setti saman á Hesteyri. Þessi litla virkjun skilaði nægilegu til að keyra ísskáp og frystikistu og eitthvað af eldhústækjum. En smám saman magnaðist löngunin í að kynda húsið með rafmagni og að hætta öllum olíuflutning að vestan. Árið 2015 kom síðan góður vinur Brynjar Bragason með gönguhóp á Hesteyri og það lá aðvitað beint við að spyrja hann álits á því að virkja Þverána. Hann hélt það nú og viku seinna mætti hann með virkjanasérfræðing Eflu til að reikna allt dæmið út. Við sóttum um styrk til ríksins, og fengum. Þar með var hægt að byrja.  Það var „smá vesen“ að koma virkjuninni upp en það tókst þó að lokum eftir gífurlega vinnu með ómetanlegri hjálp bestu fáanlegu sérfræðinga og að minnsta kosti fimmtíu manns sem komu með einum eða öðrum hætti að þessu skemmtilega verkefni. Fremstur í þeim hópi var sérstakur vinur okkar, bolvíski rafmagnsverkfræðingurinn Brynjar Bragason, sem dreif verkefnið áfram af miklum eldmóð. Okkar kæri vinur og gjörsamlega óstöðvandi vinnuþjarkur, rafmagnsverkfræðingurinn Lúðvík Ögmunsson frá Hlöðuvík var frá upphafi með í verkefninu og sá um „dreifikerfið“. Guðjón Jónsson, smiðurinn laghenti og mágur okkar og Margrét Vagnsdóttir smíðuðu meðal annars stöðvarhúsið, Magnús Ingólfsson sá um smíðavinnu í Læknishúsinu. Svo þurfti auðvitað að grafa niður rör og kapla og smíða stíflu í Þveránni. Þar voru þeir Brynjar og Baldur Brynjarssynir ásamt vinum, Roland Smelt mágur okkar og synir hans Vagn Margeir,  Paul Lukas og Hermann með vinum, og svo tveir Seeds sjálfboðaliðahópar dásamlegra ungmenna utan úr heimi sem grófu eins og enginn væri morgundagurinn. Mannvinurinn, multi talentið og góður vinur, Már Óskarsson tók við um tíma á Hesteyri þegar mikið á reyndi. Haukur Vagnsson og Reimar Vilmundarson sáu um að koma öllum mannskapnum norður. Virkjunin var svo vígð árið 2017 að viðstöddum allflestum vinum og vandamönnum sem að virkjuninni komu. Og auðvitað hlaut hún nafnið Vinavirkjun.

Scroll to Top